Nýtt starfsleyfi fyrir Creditinfo Lánstraust hf.
Persónuvernd hefur veitt Creditinfo Lánstrausti hf. nýtt starfsleyfi til vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust einstaklinga. Gerðar hafa verið tilteknar breytingar frá fyrra leyfi, dags. 19. júní 2012 (mál nr. 2012/266). Nánar tiltekið segir nú í 2. mgr. 2. gr. leyfisins að ekki sé heimil vinnsla upplýsinga um greiðsluaðlögun eftir að greiðsluaðlögunartímabili er lokið, en áður mælti leyfið fyrir um slíkt bann þegar um ræddi endanlega samþykkta greiðsluaðlögun. Þá kemur nú fram í f-lið 1. mgr. greinar 2.8. að nægilegt sé að tilkynningar til hinna skráðu um uppflettingar á þeim séu sendar þeim mánaðarlega.
STARFSLEYFI
Persónuvernd hefur hinn 19. desember 2013 tekið eftirfarandi ákvörðun í máli nr. 2013/1169:
Um leyfisskyldu
Handhafi slíks leyfis er nefndur fjárhagsupplýsingastofa, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 246/2001. Í 2. mgr. 2. gr. hennar er ákvæði sem hljóðar svo:
„Persónuvernd getur bundið slíkt starfsleyfi þeim skilmálum sem hún telur vera nauðsynlega hverju sinni. Skal hún þá m.a. taka mið af þeim atriðum er greinir í 35. gr. laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Ef sérstaklega stendur á að mati Persónuverndar, getur stofnunin vikið frá ákvæðum reglugerðarinnar við veitingu starfsleyfis.“
Leyfi og leyfisskilmálar
Almennt um heimila vinnslu
Heimil er vinnsla upplýsinga sem hafa verið löglega birtar í opinberum auglýsingum, þó ekki um greiðsluaðlögun þegar greiðsluaðlögunartímabili, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 101/2010 um greiðsluaðlögun einstaklinga, er lokið. Ef upplýsingar, sem mæla gegn lánshæfi hins skráða, eru orðnar fjögurra ára gamlar, má ekki miðla þeim.
Óheimil er vinnsla upplýsinga um umdeildar skuldir. Það á við ef skuldari hefur andmælt skuld og hún ekki verið staðfest með réttargjörð. Það er almennt skilyrði að löginnheimta sé hafin gegn hinum skráða, s.s. að stefna hafi verið birt, eða að hann hafi skriflega viðurkennt fyrir kröfuhafa að skuld sé fallin í gjalddaga.
Fjárhagsupplýsingastofa skal ávallt hafa á reiðum höndum nauðsynleg skjöl til að geta sýnt að framangreind skilyrði séu uppfyllt. Ekki er þó gerð krafa um að hún varðveiti skjöl, s.s. ljósrit af skuldaviðurkenningum eða stefnum, lengur en í þrjá mánuði, enda gæti hún þess, í samskiptum sínum við áskrifendur, að þeir geti lagt þau fram ef þörf krefji.
Að öðru leyti er vísað til 3. gr. reglugerðar nr. 246/2001.
Miðlun persónuupplýsinga
Óheimilt er að miðla samandregnum upplýsingum nema skuld sé a.m.k. 50.000 krónur. Þá er óheimil miðlun upplýsinga um skuld sé fjárhagsupplýsingastofu kunnugt um að hún sé ekki lengur í vanskilum – s.s. vegna skuldajöfnuðar, þess að hún hafi verið felld niður, greidd eða henni komið í skil með öðrum hætti.
Óheimilt er að miðla upplýsingum um hve oft tilteknum einstaklingi eða einstaklingum hefur verið flett upp.
Um miðlun fer að öðru leyti að 6. gr. reglugerðar nr. 246/2001.
Fræðsluskylda
Um hvað á að fræða?
„Þegar fjárhagsupplýsingastofa safnar fjárhagsupplýsingum frá öðrum en hinum skráða skal hún samtímis gera hinum skráða viðvart og skýra honum frá eftirtöldum atriðum:
1. hvert sé nafn og heimilisfang fjárhagsupplýsingastofu;
2. hver beri daglega ábyrgð á því að fullnægt sé skyldum ábyrgðaraðila samkvæmt lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og reglum sem settar hafa verið á grundvelli þeirra;
3. hver sé tilgangur vinnslunnar;
4. hvaða persónuupplýsingar um viðkomandi verði unnið með;
5. hvaðan upplýsingar koma;
6. hverjir verði viðtakendur upplýsinga, þar á meðal um hvort ætlunin sé að miðla upplýsingum um Netið eða flytja þær með öðrum hætti úr landi, hvernig og til hverra.“
Ef ekki liggur fyrir nein réttargjörð, sem staðfestir réttleika upplýsinga um vanskil, skal geta þess í fræðslu að þeim verði eytt af skránni, snúi viðkomandi sér til stofunnar og andmæli tilvist kröfu eða fjárhæð hennar. Greina skal frá því að slíkri mótbáru megi koma á framfæri munnlega eða skriflega.
Sé skuldsetning þess eðlis að ekki verði gefnar samandregnar upplýsingar um hana, þótt taka megi mið af henni við mat á lánshæfi, skal geta þess í fræðslu að upplýsingum um hana verði ekki miðlað. Fræðsla skal innhalda skýra og greinargóða almenna lýsingu á þeim breytum sem teknar eru með í reikninginn við mat á lánshæfi o.þ.h.
Hvernig skal fræða?
Þegar fjárhagsupplýsingastofa er ábyrgðaraðili, og fræðsluskyldan hvílir á henni sjálfri, ber henni að veita fræðslu í samræmi við ófrávíkjanlegt ákvæði 2. mgr. 21. gr. laga nr. 77/2000. Í því felst þó ekki að aldrei megi hafa mann á skrá nema hann hafi sannanlega fengið fræðslu í hendur. Hafi fræðslutilkynning verið endursend, og fjárhagsupplýsingastofa kannað hvort hann hafi fengið nýtt heimilisfang samkvæmt Þjóðskrá, og reynt að senda honum nýja tilkynningu þangað, en hún verið endursend, eða send um hæl með áritun um að hann hafi ekki vitjað sendingar, eða neitað að veita henni viðtöku, má stofan hafa nafn hans á skrá.
Velji fjárhagsupplýsingastofa að fylgja framangreindu verkferli skal hún ávallt hafa undir höndum gögn er staðfesti að hún hafi gert það og geta framvísað þeim að ósk Persónuverndar.
Þegar upplýsinga er aflað frá hinum skráða
„Ef upplýsingar um fjárhagsmálefni og lánstraust eru fengnar hjá hinum skráða skal fjárhagsupplýsingastofa fræða hann um hver sé ábyrgðaraðili, hvert sé markmið söfnunarinnar, hvernig auðkenningu upplýsinga verði hagað, hverjum upplýsingarnar verði afhentar, hvort honum sé skylt eða valfrjálst að veita umbeðnar upplýsingar og hvaða afleiðingar það kunni að hafa í för með sér geri hann það ekki. [...] Frekari fræðslu skal veita ef það er nauðsynlegt til að tryggja að hinn skráði geti gætt hagsmuna sinna, t.d. fræða hann um upplýsingarétt sinn samkvæmt lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.“
Rangar eða villandi upplýsingar
Þegar hinn skráði dregur áreiðanleika upplýsinga í efa, og greinir t.d. frá því að skuld hafi verið komið í skil, með greiðslu eða annarri aðferð, getur fjárhagsupplýsingastofa hvorki gert þá kröfu til hans að hann beri erindið upp skriflega né sett sem skilyrði að hann leggi fram skrifleg gögn máli sínu til sönnunar. Hún má þó gera athugun hjá viðkomandi ábyrgðaraðila á réttmæti fullyrðingar hins skráða (skuldarans).
Hafi röngum, villandi eða ófullkomnum upplýsingum verið miðlað, eða þær notaðar á annan hátt, ber fjárhagsupplýsingastofu, eftir því sem henni er frekast unnt, að hindra að það hafi áhrif á hagsmuni hins skráða. Til þess skal hún senda skriflega leiðréttingu til allra sem fengu slíkar upplýsingar á síðastliðnu hálfu ári. Hún skal einnig fræða hinn skráða um það hverjir hafa fengið upplýsingarnar á því tímabili og hvaðan þær hafi komið.
Um andmælarétt hins skráða
Svara skal andmælum skriflega og ekki síðar en að fjórtán dögum liðnum. Þetta á bæði við þegar hinn skráði telur upplýsingar vera rangar eða villandi – og fer fram á eyðingu, leiðréttingu eða lokun fyrir notkun á þeim – og ef hann telur vinnsluna vera óheimila. Haldi hann því fram að skuld sé greidd, eða henni hafi með öðrum hætti verið komið í skil, er fjárhagsupplýsingastofu heimilt að gera athugun á réttmæti þess. Það má hún t.d. gera með því að bera málið undir viðkomandi áskrifanda/kröfuhafa og eftir atvikum fá færsluna bakfærða.
Fallist fjárhagsupplýsingastofa ekki á andmæli hins skráða skal hún greina honum frá því skriflega og skýra honum frá rétti sínum til að kæra synjunina til Persónuverndar innan þriggja mánaða.
Að öðru leyti gilda ákvæði 8. gr. reglugerðar nr. 246/2001.
Eyðing upplýsinga
Um eyðingu og leiðréttingu rangra eða villandi persónuupplýsinga gilda að öðru leyti ákvæði 5. gr. reglugerðar nr. 246/2001, en um eyðingu og bann við notkun persónuupplýsinga, sem hvorki eru rangar né villandi, fer samkvæmt 26. gr. laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.
Um upplýsingarétt hins skráða
Samkvæmt 7. gr. reglugerðar nr. 246/2001 á hann rétt á að vita um eftirfarandi atriði:
„1. hvaða upplýsingar um hann er eða hefur verið unnið með;
2. tilgang vinnslunnar;
3. hver fær, hefur fengið eða getur fengið upplýsingar um hann;
4. hvaðan upplýsingarnar hafa komið;
5. hvaða öryggisráðstafanir eru og verða viðhafðar við vinnslu.“
Hinn skráði getur gert kröfu um að fá skrifleg svör. Þá er fjárhagsupplýsingastofu skylt að afhenda honum endurrit eða ljósrit af þeim upplýsingum sem hún hefur undir höndum. Um endurgjald fer að 15. gr. laga nr. 77/2000.
Verða skal við ósk hins skráða svo fljótt sem verða má og eigi síðar en innan tveggja vikna frá móttöku hennar. Valdi sérstakar ástæður því að ómögulegt sé fyrir fjárhagsupplýsingastofu að afgreiða erindið innan þessa frests má hún þó gera það síðar – en þá skal hún, innan frestsins, útskýra ástæðu tafarinnar og hvenær svars sé að vænta.
Hafi fjárhagsupplýsingastofa undir höndum aðrar upplýsingar um hinn skráða en þær sem beiðni hans lýtur að skal hún greina honum frá því og upplýsa hann um rétt sinn til að kynna sér þau gögn af eigin raun.
Samningsgerð við áskrifendur
a. - Að í hvert sinn sem áskrifandi geri uppflettingu skuli tilgreina og skrá til hvers það sé gert. Það getur t.d. verið til að kanna lánstraust tiltekins einstaklings vegna væntanlegra eða yfirstandandi lánaviðskipta eða vegna greiðslukortaþjónustu.
b. - Að ábyrgðaraðili noti persónuupplýsingar ekki við ráðningar í störf, óháð því hvort hinn skráði hafi gefið samþykki sitt fyrir því, nema um alveg sérstakt trúnaðarstarf sé að ræða og nauðsynlegt sé, eðlis starfsins vegna, að afla upplýsinganna.
c. - Að áskrifandi láti fjárhagsupplýsingastofu vita ef skuld er greidd eða henni komið í skil með öðrum hætti.
d. - Að áskrifandi megi ekki afrita skrá fjárhagsupplýsingastofu, samtengja hana við aðrar skrár eða vinna hana á nokkurn annan hátt, þótt hann kunni að fá tækifæri til slíks, t.d. vegna tæknibilunar eða fyrir mistök.
e. - Að áskrifandi, eða hver starfsmaður hans, skuli hafa eigið aðgangsorð sem honum sé óheimilt að láta öðrum í té eða endurnýta, t.d. við starfsmannaskipti.
f. - Að hinum skráða verði ávallt veitt lögskyld fræðsla. Í því felst m.a. að þegar áskrifandi afli sér persónuupplýsinga um hinn skráða verði hann látinn vita af því. Skal tilkynning þar að lútandi send hinum skráða eigi síðar en mánuði frá uppflettingu.
h. - Að synji áskrifandi hinum skráða um lánveitingu, vegna upplýsinga sem komi úr þeim skrám sem starfsleyfi þetta tekur til, verði honum greint frá því.
i. - Að allar uppflettingar verði rekjanlegar.
Komi í ljós að áskrifandi hafi brotið gegn áskriftarskilmálum skal fjárhagsupplýsingastofa grípa til viðhlítandi ráðstafana með það fyrir augum að hindra að slíkt endurtaki sig – eftir atvikum með hækkun áskriftargjalds.
Öryggisráðstafanir o.fl.
Gera skal nauðsynlegar ráðstafanir, tæknilegar og skipulagslegar, til að hindra misnotkun persónuupplýsinga og vernda þær gegn ólöglegri eyðileggingu, gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi. Tryggja skal rekjanleika uppflettinga þannig að í hvert skipti sem uppfletting á sér stað, eða fyrirspurn er gerð, skráist hver gerði hana, hvaða upplýsingar voru unnar, hvernig og hvenær. Varðveita skal upplýsingar úr slíkri atvikaskrá („log-skrá“) í 2 ár.
Öll gagnaskipti milli fjárhagsupplýsingastofu og áskrifenda, um óvarið internet, skulu vera á dulkóðuðu formi. Nota skal öruggar fjartengingar. Fái áskrifendur aðgang að gögnum fjárhagsupplýsingastofu í gegnum tiltekna vefsíðu skal stofan viðhafa allar nauðsynlegar tæknilegar ráðstafanir til að tryggja öryggi vernd gegn óleyfilegum aðgangi, s.s. hafa sérstök aðgangsstýrð vefsvæði.
Hver sá sem starfar hjá fjárhagsupplýsingastofu er þagnarskyldur um þau atriði sem hann kemst að í starfi sínu, og leynt eiga að fara. Hann skal undirrita þagnarheit.
Um breytingar, gildistíma o.fl.
Meiri háttar breytingar á vinnslu persónuupplýsinga eru háðar leyfi Persónuverndar en minni háttar breytingar nægir að tilkynna. Það má gera eftirá en þó ekki síðar en fjórum vikum eftir að þær eru gerðar. Stöðvun á rekstri og vinnslu skal tilkynna þegar í stað.
Fjárhagsupplýsingastofu er heimilt að semja við tiltekinn aðila um að annast, í heild eða að hluta, þá vinnslu persónuupplýsinga sem hún sjálf ber ábyrgð á enda hafi hún áður sannreynt að hann geti framkvæmt viðeigandi öryggisráðstafanir og viðhaft innra eftirlit.
Hverjum þeim er starfar í umboði fjárhagsupplýsingastofu eða vinnsluaðila, að vinnsluaðila sjálfum meðtöldum, og sem hefur aðgang að persónuupplýsingum, er aðeins heimilt að vinna með persónuupplýsingar í samræmi við fyrirmæli í vinnslusamningi nema lög mæli fyrir á annan veg.
Leyfi þetta öðlast gildi 1. janúar 2014 og gildir til 31. desember s.á.