Nýtt starfsleyfi Creditinfo til vinnslu upplýsinga um lögaðila
Reykjavík, 19. desember 2014
Efni: Starfsleyfi til vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust lögaðila í því skyni að miðla þeim til annarra
Samkvæmt 2. mgr. 45. gr. laga nr. 77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga þarf leyfi Persónuverndar til söfnunar og skráningar upplýsinga, sem varða fjárhagsmálefni og lánstraust fyrirtækja, svo og annarra lögaðila, í því skyni að miðla til annarra upplýsingum um það efni. Með stoð í ákvæðinu hefur verið sett reglugerð nr. 246/2001 um söfnun og miðlun upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust sem hefur að geyma nánari reglur um það hvernig slíkri upplýsingavinnslu skuli hagað.
Fyrir liggur beiðni Creditinfo Lánstrausts hf. frá 4. desember 2014 um endurnýjun starfsleyfis samkvæmt framangreindum ákvæðum til vinnslu fjárhagsupplýsinga um lögaðila, en til dagsins í dag hefur um þá vinnslu gilt leyfi, dags. 20. desember 2012 (mál nr. 2012/1321).
Hér með tilkynnist sú ákvörðun Persónuverndar að veita Creditinfo-Lánstrausti hf. nýtt starfsleyfi til söfnunar og skráningar upplýsinga, sem varða fjárhagsmálefni og lánstraust fyrirtækja, svo og annarra lögaðila, í því skyni að miðla til annarra upplýsingum um það efni. Leyfið, sem gildir til 19. desember 2016, er bundið því skilyrði að við meðferð upplýsinganna sé í einu og öllu farið að ákvæðum reglugerðar nr. 246/2001.