Fréttir

Fundaröð Persónuverndar um nýja persónuverndarlöggjöf 2018 - upplýsingar og skráning þátttöku

26.10.2018

Persónuvernd heldur í kynningarherferð um landið í október og nóvember þar sem áhugasömum verður boðið að sækja kynningarfundi um nýju persónuverndarlöggjöfina.

 

Vinsamlegast skráið þátttöku

 

Á kynningarfundum Persónuverndar verður meðal annars farið yfir grunnreglur persónuverndarlöggjafarinnar sem allir þurfa að kunna skil á. Persónuvernd hvetur því atvinnurekendur til að gera starfsmönnum sínum kleift að mæta.

Ný persónuverndarlöggjöf, byggð á reglugerð Evrópusambandsins, tók gildi hérlendis 15. júlí síðastliðinn en löggjöfin markar tímamót í sögu persónuverndarlöggjafar í Evrópu. Af því tilefni heldur Persónuvernd í kynningarherferð um landið þar sem áhugasömum verður boðið að sækja kynningarfundi um nýju löggjöfina. Sérstaklega verður fjallað um það hvaða þýðingu löggjöfin hefur fyrir einstaklinga og réttindi þeirra, og þær kröfur sem hún gerir til fyrirtækja, stjórnvalda og annarra ábyrgðaraðila.

Fundaröðin hefst á Akureyri miðvikudaginn 31. október og lýkur í Reykjavík mánudaginn 26. nóvember. Allir eru velkomnir.

Erindi flytja Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, Vigdís Eva Líndal, skrifstofustjóri upplýsingaöryggis hjá Persónuvernd, og Þórður Sveinsson, skrifstofustjóri lögfræðisviðs hjá Persónuvernd.

Dagskrá:

  • Akureyri – Menningarhúsið Hof, Strandgötu 12, miðvikudaginn 31. október kl. 13-15.
  • Ísafjörður – Edinborgarhúsið, Aðalstræti 7, fimmtudaginn 1. nóvember kl. 13-15.
  • Egilsstaðir – Hótel Hérað, Miðvangi 1-7, mánudaginn 5. nóvember kl. 10-12.
  • Vestmannaeyjar – Akóges-salurinn, Hilmisgötu 15, miðvikudaginn 7. nóvember kl. 10-12.
  • Höfn í Hornafirði – Hótel Höfn, Víkurbraut, mánudaginn 12. nóvember kl. 12-14.
  • Selfoss – Hótel Selfoss, Eyrarvegi 2, miðvikudaginn 14. nóvember kl. 13:30-15:30.
  • Reykjanesbær – Hljómahöll, Hjallavegi 2, mánudaginn 19. nóvember kl. 13-15.
  • Borgarnes – Hjálmaklettur, Borgarbraut 54, fimmtudaginn 22. nóvember kl. 12:30-14:30.
  • Reykjavík – Hótel Reykjavík Natura, Nauthólsvegi 52, mánudaginn 26. nóvember kl. 13-15.*

 

Tilgangur skráningar er að áætla fjölda þátttakenda.

* Fundurinn verður tekinn upp og honum streymt á vefsíðu Persónuverndar.



Var efnið hjálplegt? Nei