Fréttir

Ítrekun á tilmælum vegna notkunar samfélagsmiðla í skóla- og frístundastarfi

4.9.2019

Vegna fjölda fyrirspurna undanfarið ítrekar Persónuvernd tilmæli stofnunarinnar frá september 2018 þar sem því er beint til skóla og annarra sem starfa með börnum að þeir noti ekki Facebook, eða sambærilega miðla, sem samskiptamiðla fyrir miðlun persónuupplýsinga um ólögráða börn, hvort heldur sem um almennar eða viðkvæmar persónuupplýsingar þeirra er að ræða.

Þá er ýmsa fræðslu að finna á vef Persónuverndar hvað varðar vinnslu persónuupplýsinga um börn:

Ábending frá Persónuvernd vegna misskilnings í skólasamfélaginu um gildissvið nýrra persónuverndarlaga.

Spurt og svarað um börn.



Var efnið hjálplegt? Nei