Fréttir

Meðferð máls vegna hljóðupptöku á Klaustri

Klaustursmálið er í hefðbundnum farvegi

21.12.2018

Vegna fjölda fyrirspurna skal upplýst að mál vegna upptöku á samtölum þingmanna á veitingastaðnum Klaustri er í hefðbundnum farvegi hjá Persónuvernd. Það var rætt á fundi stjórnar Persónuverndar í gær, 20. desember 2018, og var ákveðið að senda lögmönnum gagnaðila, sem samkvæmt fréttum hafði staðið að upptökunni, gögn málsins og veita þeim kost á athugasemdum fyrir hönd umbjóðanda síns. Jafnframt var ákveðið að óska eftir umræddri hljóðupptöku, sem og upptökum úr eftirlitsmyndavélum á Klaustri frá þeim tíma sem samtölin voru tekin upp. Frestur til athugasemda og afhendingar upptökunnar var veittur til 11. janúar 2019.

Að fundi loknum bárust af því fréttir að úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem hafnað var kröfu lögmanns þingmannanna um sönnunarfærslu fyrir dómi vegna málsins, þ. á m. með öflun upptaka úr öryggismyndavélum, hefði verið kærður til Landsréttar. Beðið verður með að óska eftir umræddum upptökum þar til niðurstaða Landsréttar um úrskurðinn liggur fyrir.



Var efnið hjálplegt? Nei