Fréttir
Creditinfo (LT) - upplýsingar um greiðsluaðlögun fyrir einstaklinga
Persónuvernd telur að CreditInfo (Lánstraust) hafi ekki, skv. gildandi starfsleyfi, heimild til sölu upplýsinga um þá einstaklinga sem endurskipuleggja fjárhag sinn vegna greiðsluerfiðleika.
Persónuvernd hefur svarað LT um að núverandi starfsleyfi taki ekki til upplýsinga um greiðsluaðlögun. Þá segir stofnunin að vilji LT birta slíkar upplýsingar þurfi félagið að óska eftir breytingum á núgildandi starfsleyfi að því er varðar einstaklinga.