Fréttir

Nýjar reglur um leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga

19.9.2019

Þann 13. september 2019 tóku gildi nýjar reglur nr. 811/2019 um leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga og samhliða voru eldri reglur nr. 712/2008 felldar úr gildi. Hinar nýju reglur taka mið af nýrri persónuverndarlöggjöf og eru því nokkuð breyttar frá eldri reglum.

Helst ber þar að nefna að skylda til að tilkynna Persónuvernd um vinnslu persónuupplýsinga hefur nú verið afnumin úr reglunum, enda kveða persónuverndarlögin nú ekki á um slíka skyldu.

Ekki voru gerðar umfangsmiklar breytingar á þeim vinnslutegundum sem háðar eru leyfi Persónuverndar. Þó er vert að nefna þau nýmæli að nú er vinnsla persónuupplýsinga undanþegin leyfi Persónuverndar, fari hún fram í samræmi við hátternisreglur sem samþykktar hafa verið af stofnuninni. Loks voru gerðar breytingar á reglum um flutning persónuupplýsinga úr landi, í samræmi við kröfur gildandi persónuverndarlaga.

Reglurnar má sjá á vef Stjórnartíðinda:
Reglur um leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga

og á vef Persónuverndar:
Reglur um leyfisskylda vinnslu persónuupplýsinga




Var efnið hjálplegt? Nei