Fréttir

Öryggisveikleiki í WhatsApp

14.5.2019

Persónuvernd hefur borist tilkynning frá persónuverndarstofnun Írlands um alvarlegan öryggisveikleika í WhatsApp-samskiptaforritinu. Öryggisveikleikinn gat gert utanaðkomandi aðilum kleift að setja inn ósamþykktan hugbúnað og fá aðgang að persónulegum gögnum þeirra sem hafa sett upp WhatsApp-forritið.

WhatsApp hefur enn ekki sent inn formlega tilkynningu um öryggisbrest samkvæmt 33. grein persónuverndarreglugerðarinnar (GDPR) vegna þess að rannsókn stendur enn yfir á því hvort einhver gögn WhatsApp-notenda á Evrópska efnahagssvæðinu hafi orðið aðgengileg óviðkomandi aðilum. 

Möguleiki er á að lekinn hafi náð til notenda á Evrópska efnahagssvæðinu og í ljósi þess hversu alvarlegur veikleikinn er eru notendur forritsins hvattir til þess að sækja nýjustu uppfærslur þess frá Apple Store eða Google Play Store.

WhatsApp vinnur að greiningu málsins ásamt hlutaðeigandi persónuverndarstofnunum. 



Var efnið hjálplegt? Nei