Fréttir

Stefna úttekta og frumkvæðisathugana fyrir árið 2022

8.11.2021

Stefna úttekta og frumkvæðisathugana fyrir árið 2022


Persónuvernd hefur ákveðið að árið 2022 verði við ákvörðun um úttektir og frumkvæðisathuganir einblínt á vinnslu persónuupplýsinga í eftirfarandi forgangsröð:

1. Vinnsla heilsufarsupplýsinga í hvers konar snjalllausnum/hugbúnaðarkerfum.
2. Vinnsla persónuupplýsinga barna í hvers konar snjalllausnum/hugbúnaðarkerfum.
3. Önnur vinnsla heilsufarsupplýsinga.
4. Önnur vinnsla persónuupplýsinga barna.
5. Vinnsla persónuupplýsinga í snjalllausnum/hugbúnaðarkerfum öryggisfyrirtækja.
6. Vinnsla persónuupplýsinga í snjalllausnum/hugbúnaðarkerfum fjármálafyrirtækja.
7. Persónusnið (microtargeting).

Þessi stefna útilokar ekki að annars konar mál verði tekin til frumkvæðisathugunar eða úttektar ef upp koma aðkallandi mál sem þarf að bregðast skjótt við.
Ákvörðun um framangreinda forgangsröð byggist á yfirferð yfir þau mál sem hafa verið til skoðunar hjá Persónuvernd sem möguleg úttektarmál eða frumkvæðisathuganir, sem og á áherslum stofnunarinnar síðustu ár.



Var efnið hjálplegt? Nei