Úrlausnir

Starfsleyfi fyrir Lánstraust hf.

30.5.2006

til að annast söfnun og skráningu upplýsinga sem varða fjárhagsmálefni og lánstraust einstaklinga, í því skyni að miðla þeim til annarra, sbr. 2. gr. reglugerðar nr. 246/2001, um söfnun og miðlun upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust og 4. tl. 1. mgr. 7. gr. reglna Persónuverndar nr. 90/2001.


1. gr.

Lánstrausti hf., kt. 710197-2109, í leyfi þessu nefnt starfsleyfishafi, er heimilt að safna og miðla tilteknum persónuupplýsingum sem varða fjárhag og lánstraust einstaklinga, samkvæmt því sem nánar greinir í leyfinu.

Starfsleyfi þetta heimilar söfnun upplýsinganna í eitt miðlægt gagnasafn og miðlun þeirra með beinlínutengingu við hóp áskrifenda að því gagnasafni.

Starfsleyfi þetta tekur ekki til útgáfu skýrslna um lánshæfi ("credit-rating reports").

Starfsleyfið heimilar ekki vinnslu upplýsinga sem eðli sínu samkvæmt geta ekki haft þýðingu við mat á fjárhag og lánstrausti hins skráða. Aldrei er heimilt að taka í slíka skrá viðkvæmar persónuupplýsingar, sbr. 8. tl. 2. gr. laga nr. 77/2000, með áorðnum breytingum. Upplýsingar um skuldastöðu manna má ekki veita með þeim hætti að þær geti verið grundvöllur mats á fjárhagslegri stöðu annars en þess er þær varða.

Starfsleyfi þetta heimilar ekki samtengingu skráa sem falla undir ákvæði starfsleyfisins laga nema sérstök heimild frá Persónuvernd standi til þess. Halda skal aðskildum þeim skrám sem til verða samkvæmt 2. gr. Þó má bjóða áskrifendum að leita samtímis í tveimur eða fleirum af þeim skrám sem haldnar eru á grundvelli starfsleyfis þessa.

2. gr.
Upplýsingar sem heimilt er að safna og skrá.

Starfsleyfishafi má safna upplýsingum með tvenns konar hætti:

a. Frá áskrifendum.

Starfsleyfishafi má safna frá áskrifendum upplýsingum um skuldir einstaklinga sem nema a.m.k. kr. 30.000,- að höfuðstóli, enda hafi starfsleyfishafi fengið óyggjandi skriflega upplýsingar er staðfesti tilvist viðkomandi skuldar og um að a.m.k. eitt eftirfarandi skilyrða sé uppfyllt:

a.1. Skuldari hafi fallist á að greiða skuldina með sátt sem er aðfararhæf samkvæmt 1. gr. aðfararlaga nr. 90/1989.

a.2. Skuldara hafi sannanlega verið birt greiðsluáskorun vegna skuldarinnar, enda uppfylli hún öll skilyrði 7. gr. laga nr. 90/1989, og fyrir liggi að frestur samkvæmt því ákvæði sé liðinn.

a.3. Skuldari hafi verið dæmdur til að greiða skuldina.

a.4. Fyrir liggi sannanlega vanefndur nauðasamningur sem skuldari hefur gert og áskrifandi er, eftir atvikum auk annara, aðili að.

a.5. Skuldari hafi skriflega gengist við því fyrir kröfuhafa (áskrifanda) að skuld sé í gjalddaga fallin.

a.6. Skuldari hafi með sérstakri yfirlýsingu í láns- eða skuldaskjali, sem skuldin er sprottin af, fallist á heimild áskrifanda til að óska skráningar LT á vanskilunum enda séu skilyrði til þeirrar heimildar uppfyllt. Slík heimild skal vera áberandi og skýr í skjalinu og við það miðuð að vanskil hafi varað í a.m.k. 40 daga. Áskrifandi sem óskar skráningar á grundvelli slíkrar heimildar skal um leið ábyrgjast að honum sé ekki kunnugt um að skuldari hafi nokkrar réttmætar mótbárur gegn greiðslu skuldarinnar. Beiðni um skráningu skal undirrituð af lögmanni í þjónustu áskrifanda eða fulltrúa hans.

b. Úr opinberum gögnum.

Úr skrám sem aðgengilegar eru almenningi má starfsleyfishafi safna:

b.1. Upplýsingum dómstóla um skuldara skv. uppkveðnum dómum, eða skv. áritunum dómara á stefnur í málum þar sem ekki hefur verið mætt fyrir stefnda við þingfestingu máls eða þingsókn hefur síðar fallið niður af hans hálfu, sbr. 113. gr. laga nr. 91/1991. Slíkar upplýsingar má aðeins skrá ef um er að ræða skuld eða skuldir sama skuldara við tiltekinn kröfuhafa sem nema a.m.k. kr. 30.000,- að höfuðstóli hver skuld.

b.2. Upplýsingum um framkvæmd fjárnám, skv. málaskrám um fjárnámsbeiðnir sem sýslumenn halda í samræmi við 4. gr. reglugerðar nr. 17/1992. Upplýsingar um árangurslaus fjárnám má þó skrá án tillits til fjárhæðar fjárnámskrafna, en um fjárnám með árangri því aðeins að fjárhæð viðkomandi fjárnámskröfu nemi a.m.k. kr. 30.000.

b.3. Upplýsingum um uppboð, sem sýslumaður hefur þegar auglýst í Lögbirtingablaðinu eða í dagblöðum eða á annan hátt í samræmi við 1. mgr. 20. gr. og 2. mgr. 26. gr. laga nr. 90/1991.

b.4. Upplýsingum um töku búa til gjaldþrotaskipta, sem fengnar eru í skrám þeim um gjaldþrotaskipti, sem héraðsdómstólar halda í samræmi við reglugerð nr. 226/1992. Heimild þessi tekur eingöngu til þeirra upplýsinga sem tilgreindar eru í 2., 3. 6. og 8. tl. 4. gr. reglugerðarinnar. Slíkar upplýsingar er einungis heimilt að varðveita þar til birt hefur verið auglýsing um skiptalok.

b.5. Upplýsingar um nauðasamningsumleitanir, innkallanir og skiptalok, sem birtar hafa verið í Lögbirtingablaðinu, skv. 5. mgr. 85. gr. og 2. mgr. 162. gr. laga nr. 21/1991.

b.6. Upplýsingar um greiðslustöðvanir sem fengar eru í skrám þeim um gjaldþrotaskipti sem héraðsdómstólar halda í samræmi við reglugerð nr. 226/1992. Heimildin tekur eingöngu til þeirra upplýsinga sem tilgreindar eru í 2. gr. reglugerðarinnar.

b.7. Upplýsingum frá hlutafélagaskrá um stofnendur, stjórnarmenn og framkvæmdastjóra hlutafélaga og einkahlutafélaga, enda hafi þeir staðið að a.m.k. tveimur slíkum félögum sem úrskurðuð hafa verið gjaldþrota s.l. fjögur ár.

b.8. Upplýsingum um gerða kaupmála og fjárræðissviptingar sem birtar hafa í Lögbirtingablaðinu, skv. 2. mgr. 86. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 og 3. tl. 14. gr. lögræðislaga nr. 71/1997.


3. gr.
Miðlun upplýsinga

Upplýsingum þeim sem starfsleyfishafi má safna samkvæmt 2. gr. má einungis miðla með eftirfarandi hætti:

a. Með beinlínutengingu við áskrifendur:
Starfsleyfishafi má veita áskrifendum eftirfarandi upplýsingar með beinlínutengingu, enda geri slík tenging aðeins mögulegt að fletta einum einstaklingi upp í einu:

a.1. Upplýsingar frá áskrifendum/kröfuhöfum.

Af þeim upplýsingum sem starfsleyfishafi fær um vanskil frá einum áskrifanda, skv. a-lið 2. gr. má hann aðeins miðla til annarra upplýsingum um nafn, heimilisfang og kennitölu skuldara, hvort vanskil séu fyrir hendi þegar uppfletting fer fram og um fjárhæðir vanskila.
a.2. Upplýsingar úr almennt aðgengilegum skrám.
Af þeim upplýsingum sem starfsleyfishafi safnar úr opinberum gögnum og almennt aðgengilegum skrám, þ.e. skv. b-lið 2. gr., má hann aðeins miðla upplýsingum um nafn, heimilisfang og kennitölu skuldara, fjárhæð kröfu og hvort um sé að ræða dóm, áritun á stefnu, framkvæmt fjárnám, greiðslustöðvun, nauðungarsölu, gjaldþrotaskipti, innköllun eða skiptalok. Taka skal fram hvaðan viðkomandi upplýsingar eru fengnar.
Af þeim upplýsingum sem safnað er samkvæmt lið b.7. má þó ekki miðla upplýsingum um stofnendur nema félögin hafi verið úrkurðuð gjaldþrota á innan við þremur árum frá því stofnun.

b. Með afhendingu skrár til Reiknistofu bankanna:
Starfsleyfishafi má afhenda Reiknistofu bankanna heildarsafn þeirra upplýsinga sem hann safnar úr opinberum og almennt aðgengilegum skrám, sbr. b-lið 2. gr., með þeirri aðferð og þeim skilyrðum sem greinir í a-lið þessarar greinar. Um notkun Reiknistofu bankanna á þeirri skrá fer nú samkvæmt gildandi lögum og stjórnvaldsreglum um meðferð persónuupplýsinga, auk starfsleyfis sem tölvunefnd veitti og Persónuvernd kann að veita Reiknistofunni.

c. Með afhendingu skrár til einstakra banka og sparisjóða vegna svonefndrar "heimabankaþjónustu":
Starfsleyfishafi má semja beint við einstaka banka og sparisjóði um afhendingu heildarskrár gagngert og eingöngu til endursölu í svokallaðri "heimabankaþjónustu". Sú skrá skal einungis bera með sér þær upplýsingar sem starfsleyfishafi safnar úr opinberum og almennt aðgengilegum skrám, skv. b-lið 2. gr., og skal einungis vera aðgengileg með þeirri aðferð og þeim skilyrðum sem greinir í a. lið þessarar greinar. Að öðru leyti skal um þá notkun, eftir því sem við á, fara samkvæmt þeim skilmálum sem almennt gilda um skrána samkvæmt starfsleyfi þessu, m.a. um rekjanleika fyrirspurna o.s.frv.

d. Með því að afhenda lista yfir fyrirhugaðar framhaldssölur á fasteignum:
Þessi heimild er takmörkuð við þær framhaldssölur sem sýslumaður hefur þegar auglýst í samræmi við 2. mgr. 26. gr. laga nr. 90/1991.

4. gr.
Eyðing upplýsinga úr skrá
Bann við miðlun upplýsinga

Óheimilt er að miðla upplýsingum um nafn skuldara ef starfsleyfishafa er kunnugt um að viðkomandi krafa hafi verið greidd eða henni komið í skil með öðrum hætti. Á þetta við hvort heldur um er að ræða almennt aðgengilegar upplýsingar eða ekki. Sýni hinn skráði fram á að umrædd krafa hafi verið að fullu greidd, eða henni komið í skil með öðrum hætti, er starfsleyfishafa þ.a.l. óheimil öll frekari birting nafns viðkomandi í skránni. Með sama hætti skal eyða upplýsingum um skráðan kaupmála ef fyrir liggur að gengið hefur verið frá lögskilnaði þeirra aðila sem gerðu hinn skráða kaupmála.

Þegar starfsleyfishafi selur aðgang að skránni skal hann setja það sem skilyrði að viðkomandi áskrifandi skuldbindi sig til að tilkynna þegar í stað um greiðslu skuldar. Skal í umræddum samningi tekið fram að áskrifandi beri ábyrgð á að slíkar upplýsingar berist starfsleyfishafa svo ekki verði á skrá upplýsingar um mann nema hann sé skráður vegna annarra vanskila.

Persónuupplýsingar sem eru óáreiðanlegar eða ófullkomnar, miðað við tilgang vinnslu þeirra, skal afmá eða leiðrétta.

Óheimilt er að miðla upplýsingum um töku bús til gjaldþrotaskipta þegar birt hefur verið auglýsing um skiptalok.

Óheimilt er að skrá og/eða miðla upplýsingum um fjárhagsmálefni sem eldri eru en fjögurra ára. Upplýsingar um töku bús til gjaldþrotaskipta má þó varðveita þar til birt hefur verið auglýsing um skiptalok. Þegar upplýsingar verða 4 ára gamlar skal skv. framanrituðu jafnharðan taka þær af þeim skrám upplýsingum sem miðlað er úr en starfsleyfishafa er þó heimilt að varðveita upplýsingarnar í 3 ár til viðbótar, enda lúti þær ströngum aðgangstakmörkunum og þess gætt að ekki hafi aðrir að þeim aðgang en þeir starfsmenn sem nauðsynlega þurfa starfs síns vegna

5. gr.
Réttur hins skráða

Einstaklingur sem er skráður hjá starfsleyfishafa á hvenær sem er rétt á að fá vitneskju um hvaða upplýsingar um hann er eða hefur verið unnið með, tilgang vinnslunnar, hver fái, hafi fengið eða muni fá upplýsingar um hann, hvaðan upplýsingarnar hafi komið og hvaða öryggisráðstafanir séu viðhafðar við vinnsluna, að því marki sem það skerðir ekki öryggi vinnslunnar.

Starfsleyfishafa er skylt að afhenda skráðum einstaklingi endurrit eða ljósrit af þeim upplýsingum sem hann hefur undir höndum um viðkomandi. Ekki má krefjast hærra endurgjalds af þessari þjónustu en sem nemur þeim upphæðum sem innheimta má á hverjum tíma skv. gjaldskrá forsætisráðuneytis fyrir ljósrit og afrit sem veitt eru á grundvelli upplýsingalaga, sbr. nú 2. gr. gjaldskrár nr. 579/1996.

Starfsleyfishafi skal verða við beiðni hins skráða um upplýsingar svo fljótt sem verða má og eigi síðar en innan eins mánaðar frá móttöku beiðninnar. Ef sérstakar ástæður valda því að ómögulegt er fyrir ábyrgðaraðila að afgreiða erindið innan eins mánaðar er honum heimilt að gera það síðar. Þegar svo hagar til skal ábyrgðaraðili innan mánaðarfrestsins gefa hlutaðeigandi skriflegar skýringar á ástæðum tafarinnar og hvenær svars sé að vænta.

Hafi starfsleyfishafi í vörslum sínum frekari upplýsingar um hinn skráða en þær sem beiðni lýtur að skal starfsleyfishafi gera beiðanda grein fyrir því. Jafnframt skal gera hinum skráða grein fyrir rétti sínum til þess að fá að kynna sér efni skrár af eigin raun.

6. gr.
Skyldur starfsleyfishafa
6.1. Viðvörunarskylda
Þegar starfsleyfishafi safnar persónuupplýsingum í samræmi við ákvæði 2. gr. leyfis þessa skal hann gera hinum skráða viðvart og skýra honum frá þeim atriðum sem talin eru í 2. mgr. 16. gr. laga nr. 77/2000, með áorðnum breytingum. Skal hann senda slíka viðvörun eigi síðar en14 dögum áður en hann miðlar upplýsingunum í fyrsta sinn.
Starfsleyfishafa er þó ekki skylt að senda slíka viðvörun ef ætla má að hinum skráða sé þegar kunnugt um vinnsluna, svo sem vegna þess að hann hafi áður fengið tilkynningu um að nafn hans hafi verið fært á skrá starfsleyfishafa. Þetta á þó ekki við hafi lengri tími en eitt ár liðið frá síðustu skráningu.

6.2. Vandaðir vinnsluhættir
Starfsleyfishafi skal, við alla meðferð persónuupplýsinga sem leyfi þetta tekur til, gæta þess að haga vinnslunni með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti og haga allri meðferð þeirra í samræmi við vandaða vinnsluhætti persónuupplýsinga. Í því felst m.a. að gæta þess að upplýsingarnar séu áreiðanlegar og uppfærðar eftir þörfum. Persónuupplýsingar sem eru óáreiðanlegar eða ófullkomnar, miðað við tilgang vinnslu þeirra, skal afmá eða leiðrétta. Hafi röngum eða villandi upplýsingum verið miðlað eða þær notaðar ber starfsleyfishafi, eftir því sem honum er frekast unnt, að hindra að það hafi áhrif á hagsmuni hins skráða.

6.3. Samningsgerð við áskrifendur
Þegar starfsleyfishafi gerir samninga við áskrifendur skal tryggt að fram komi að áskrifendur skuldbindi sig til þess að senda starfsleyfishafa upplýsingar um það ef skuld er greidd eða henni með öðrum hætti komið í skil. Þá skal það vera skilyrði að áskrifandi skuldbindi sig til að afrita ekki skránna, samtengja hana við aðra skrá eða vinna með hana á nokkurn annan hátt, þótt viðkomandi kunni að fá tækifæri til slíks, t.d. fyrir mistök. Loks skal áskrifandi skuldbinda sig, synji hann um lánveitingu á grundvelli upplýsinga úr skránum, að greina viðkomandi frá þeirri ástæðu og jafnframt greina frá heimild viðkomandi til að fá að vita hvaða upplýsingar séu um hann færðar í skrár starfsleyfishafa.

6.4. Öryggi vinnslu
Starfsleyfishafi skal gera viðeigandi tæknilegar og skipulagslegar öryggisráðstafanir til að vernda persónuupplýsingar gegn ólöglegri eyðileggingu, gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi.

6.5. Vinnsluaðili
Starfsleyfishafa er heimilt að semja við tiltekinn aðila um að annast, í heild eða að hluta, þá vinnslu persónuupplýsinga sem hann ber ábyrgð á enda hafi hann áður sannreynt að umræddur vinnsluaðili geti framkvæmt viðeigandi öryggisráðstafanir og viðhaft innra eftirlit.
Hverjum þeim er starfar í umboði starfsleyfishafa eða vinnsluaðila, að vinnsluaðila sjálfum meðtöldum, og hefur aðgang að persónuupplýsingum, er aðeins heimilt að vinna með persónuupplýsingar í samræmi við fyrirmæli ábyrgðaraðila nema lög mæli fyrir á annan veg.

6.6. Starfsmenn
Hver sá sem starfar hjá starfsleyfishafa er þagnarskyldur um þau atriði sem hann kemst að í starfi sínu og leynt eiga að fara. Sérhver starfsmaður starfsleyfishafa skal undirrita þagnarheit þegar eftir útgáfu leyfis þessa, hafi hann ekki þegar gert það. Nýir starfsmenn skulu undirrita slíkt heit þegar þeir hefja störf hjá starfsleyfishafa.

Upplýsingagjöf samkvæmt starfsleyfi þessu mega einungis annast þeir starfsmenn Lánstrausts hf. sem eru og verða sérstaklega til þess valdir og Persónuvernd tilkynnt um.
6.7. Skýrslugjöf til Persónuverndar
Starfsleyfishafi skal ársfjórðungslega tilkynna Persónuvernd um hve margir hafi aðgang að skrám hans og hverjir það eru, hve margir einstaklingar og fyrirtæki séu á skránum og hve mikið sé skráð af hverri tegund upplýsinga.

6.8. Annað
Auk ákvæða starfsleyfis þessa skal starfsleyfishafi ávallt fara að lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau lög eru á hverjum tíma, sbr. nú lög nr. 77/2000 með áorðnum breytingum, auk annarra laga og réttarreglna sem í gildi eru hverju sinni, sbr. m.a. reglugerð nr. 246/2001 um söfnun og miðlun upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust og reglur nr. 299/2001 um öryggi persónuupplýsinga.

7. gr.
Gildistími
Starfsleyfi þetta gildir til 26. febrúar 2004.



Í Persónuvernd, 26. febrúar 2003.



Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri




Var efnið hjálplegt? Nei