Fréttir

Leiðbeiningar Persónuverndar um notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum fyrir kosningar til Alþingis 2024

6.11.2024

Persónuvernd hefur gefið út leiðbeiningar um notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum fyrir komandi kosningar til Alþingis. Þegar stjórnmálasamtök nota persónuupplýsingar kjósenda í markaðssetningu, ekki síst á samfélagsmiðlum, bera þau ábyrgð á að sú vinnsla persónuupplýsinga samrýmist persónuverndarlögum. Með hliðsjón af þeim kröfum sem persónuverndarlöggjöfin gerir beinir Persónuvernd leiðbeiningunum til stjórnmálasamtaka.

Leiðbeiningar Persónuverndar til stjórnmálasamtaka í aðdraganda alþingiskosninga

Þegar stjórnmálasamtök nota persónuupplýsingar kjósenda í markaðssetningu, ekki síst á samfélagsmiðlum, bera þau ábyrgð á að sú vinnsla persónuupplýsinga samrýmist lögum nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, og reglugerð (ESB) 2016/679. Með hliðsjón af þeim kröfum sem persónuverndarlöggjöfin gerir beinir Persónuvernd eftirfarandi leiðbeiningum til samtakanna: 

Vegna notkunar þeirra á persónuupplýsingum kjósenda í þágu markaðssetningar (svo sem með útsendingu auglýsinga- og tölvupósts, símhringingum og hliðstæðum aðferðum), að:

  • Ganga úr skugga um og geta sýnt fram á að heimilt sé að nota persónuupplýsingar kjósenda, t.d. nöfn, símanúmer, heimilisföng og netföng, í þessum tilgangi.
  • Öll skilaboð, hvort sem þau eru send með tölvupósti eða öðrum hætti, beri skýrt með sér hvaðan þau koma og gefi raunverulegan kost á einfaldri leið fyrir kjósendur til að andmæla vinnslunni.
  • Andmæli kjósenda við frekari markpósti eða -símtölum verði virt, óháð því hvort viðkomandi sé skráður á bannskrá Þjóðskrár.

 Vegna notkunar þeirra á samfélagsmiðlum, að þau:

  • Merki auglýsingar þannig að fram komi hver kosti þær.
  • Merki auglýsingar þannig að skýrt sé að þær séu vegna kosninga.
  • Geri auglýsingar svo úr garði að notendur samfélagsmiðla séu leiddir með einföldum hætti inn á vefsíður stjórnmálasamtaka þar sem verði að finna aðgengilega og skýra fræðslu um hvaða persónuupplýsingar unnið er með, hvernig þær eru notaðar og í hvaða tilgangi. Einnig verði þar að finna leiðbeiningar um hvernig notendur samfélagsmiðla geta leitað til stjórnmálasamtaka um nánari skýringar og hvernig þeir geta nýtt andmælarétt sinn.
  • Noti ekki aðferðirnar „Eigin markhópar“ (e. custom audiences) og „Líkindamarkhópar“ (e. lookalike audiences) á Facebook – en noti fremur almenna markhópa, svo sem á grundvelli staðsetningar, kyns og aldurs.
  • Noti ekki afleiddar persónuupplýsingar, þ.e. þær sem eru ráðnar af virkni og hegðun notenda á samfélagsmiðlum, svo sem því sem notendur líka við, deila eða hafa áhuga á.
  • Noti ekki persónusnið til að hvetja einstaklinga til að nýta ekki kosningarétt sinn.
Að lokum bendir Persónuvernd á álit hennar nr. 2022010107 um notkun stjórnmálasamtaka á samfélagsmiðlum fyrir kosningar til Alþingis 2021, svo og fyrra álit um sama efni nr. 2020010116 , en þar er því lýst hvernig stjórnmálasamtök þurfa að bera sig að við notkun slíkra miðla. Þá er áminningu vegna komandi kosninga að finna í niðurlagi fyrrnefnda álitsins.



Var efnið hjálplegt? Nei