Fréttir
Fyrirsagnalisti
Breska persónuverndarstofnunin sektar Facebook um 500 þúsund pund fyrir alvarleg brot gegn persónuverndarlögum
Breska persónuverndarstofnunin, Information Commissioner's Office (ICO), hefur sektað Facebook um 500 þúsund pund (um 77,6 milljónir íslenskra króna) fyrir alvarleg brot gegn persónuverndarlögum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu ICO.
Ábending frá Persónuvernd vegna misskilnings í skólasamfélaginu um gildissvið nýrra persónuverndarlaga
Að gefnu tilefni vill Persónuvernd vekja athygli á því að
stofnuninni hefur borist fjöldi ábendinga, bæði frá foreldrum barna og
starfsmönnum skóla og leikskóla, um breytta starfshætti vegna nýrra
persónuverndarlaga. Svo virðist sem misskilnings gæti víða í skólasamfélaginu
um til hvaða aðgerða þurfi að grípa til þess að skólastarf samrýmist nýjum
persónuverndarlögum. Persónuvernd hefur af því tilefni sent ábendingu til
persónuverndarfulltrúa sveitarfélaga, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Heimilis
og skóla og annarra hagsmunaaðila.
Frumkvæðisathugun vegna birtingar skattskrárupplýsinga
Persónuvernd hefur hafið athugun á birtingu Viskubrunns ehf. á skattskrárupplýsingum fyrir árið 2016 á vefsíðunni tekjur.is en í aðdraganda þess hafði stofnuninni borist fjöldi erinda einstaklinga sem töldu brotið gegn persónuverndarlöggjöf með birtingunni. Svohljóðandi bréf um þá athugun, dags. 17. október 2018, hefur verið sent lögmanni Viskubrunns:
Íslendingar meðal þeirra sem urðu fyrir öryggisbresti hjá Facebook
Öryggisbrestur hjá Facebook hafði áhrif á tæplega 2.500 notendur samfélagsmiðilsins á Íslandi.
Kynningarátak Persónuverndar vegna nýrrar persónuverndarlöggjafar
Ábending vegna nafn- og myndbirtinga á Netinu
Forstjóri Persónuverndar í viðtali við GenomeWeb
Blaðamaður á vegum bandarísku vefsíðunnar GenomeWeb tók nýverið viðtal við Helgu Þórisdóttur, forstjóra Persónuverndar, en GenomeWeb er fréttavefur þar sem áhersla er lögð á vísindi og erfðafræði. Viðtalið er birt í frétt sem fjallar um vinnslu Íslenskrar erfðagreiningar ehf. á upplýsingum um þá sem bera BRCA2-erfðabreytuna, en hún hefur í för með sér aukna hættu á krabbameini.
Grein GenomeWeb er birt hér í heild sinni, með leyfi höfundar.
127 sóttu um fimm lausar stöður hjá Persónuvernd
Persónuvernd auglýsti nýverið eftir starfsfólki. Auglýst var eftir fjórum lögfræðingum og skjalastjóra. Umsóknarfrestur var til 1. október sl. Alls sóttu 105 um stöðu lögfræðings og
Öryggisbrestur hjá Facebook
Facebook hefur tilkynnt um öryggisbrest sem varðar um 50 milljón notendur.
Persónuvernd auglýsir eftir fjórum lögfræðingum og skjalastjóra
Persónuvernd auglýsir lausar fjórar stöður lögfræðinga og eina stöðu skjalastjóra hjá stofnuninni.